Margir spá í þessu en eru samt ekki mikið að velta sér upp úr því, prófa sig ekki áfram né fræðast um muninn á pro sjampói og sjampói út úr búð. Sjampó er bara sjampó og ég ætla ekki að láta plata mig í að borga 2.000 kr meira fyrir eitthvað merki þegar ég get fengið sjampó í apótekinu á 1.500 kr. Margir hugsa svona og er það rétt að sjampó er sjampó og oft eru sama innihaldið í pro sjampó og sjampó sem fæst út í búð.
Hugsum þetta aðeins öðruvísi:
Ef að þú ert að fara halda matarboð og ert að velja þér vín með matnum þá hugsar þú hvað passar við matinn? Það hafi verið mælt með ákveðnu víni sem er frá vínakri í Frakklandi og kostar aðeins meira en það sem er í næstu hillu. Þú endar á að taka það sem er mælt með, til þess að fá eitthvað ákveðið bragð og vel bruggað vín með matnum. Það sama myndi fagmaður segja um sjampó.
Sjampó er bara sjampó, eða hvað?
Öll sjampó hafa sama tilgang, að hreinsa hár og hársvörð. Svipað innihald en hver er þá munurinn?
Jú, munurinn er sá að í búðar sjampó er mikið af efnum sem þurfa ekki að vera þarna bara til þess að fylla brúsann. Sílikon sem hleðst á hárið, hellingur af vatni, mikið af sulfat sem lætur sjampó freyða mikið og er það ekki gott fyrir hárið, þú gætir fengið kláða í hársverði og í versta falli brennt hárið, gert haldið í hársekkjunum slakt svo það myndast hárlos.
Pro sjampó leggja meira í innihald vörunnar, vítamín, olíur og efni sem hjálpa til að halda hárinu heilbrigðu.
Þú finnur mun þegar þú hefur verið að nota pro sjampóið þitt en gleymir því heima þegar þú skelltir þér í bústað og færð lánað búða sjampó hjá vini þínum og hárið verður eins og gaddavír!
Hvert fer peningurinn?
Þegar þú verslar búða sjampó þá rennur peningurinn til fyrirtækisins (búðina) og hluti rennur til þeirra sem framleiða vöruna. Það hjálpar þeim að búa til fleiri vörur og koma þeim í búðirnar aftur. Þegar þú verslar pro sjampó þá rennur peningurinn til fyrirtækisins (hárgreiðslustofunnar) styrkir því reksturinn og hluti rennur til þeirra sem framleiða vöruna, eins og hjá búðinni nema það að hluti af þeim pening fer til hóps af fólki sem er sífellt að finna nýjar og betri leiðir í að hanna betri vöru fyrir þig og hárið.
Námskeið, rannsóknir og fleira bæði fyrir þá sem hanna vöruna og fyrir þá sem selja hana svo til þín. Allir verða að fá menntun og vita sem mest um fag sitt og vörur. Svo það er mun betri að styrkja það sem vill þér vel heldur enn þeir sem vilja bara græða
Fagmenn vilja hárinu þínu bara vel og ráðleggja þér hvaða sjampó hentar þér og þínu hári.
Hugsaðu vel um þig, hár, húð og líkama.
Alveg eins og franska fjölskyldan með vínakurinn… þú getur fengið ekta vöru sem leyfir uppskriftinni að lifa og þróast eða þú getur týnt berin sjálf.
hægt er að finna þessa grein eftir mig á Bleikt.is